STÚLKA – skotthúfa með rauðum skúf

Skotthúfa með rauðum skúf minnir mig á ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Þessi skotthúfa er prjónuð úr léttlopa og með skúf úr rauðu eingirni. Sendu mér póst á netfangið skotthufan@gmail.com ef þú eignast uppskriftina.

Ég bið að heilsa

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum,
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó! heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði;
kyssi þið, bárur! bát á fiskimiði,
blási þið, vindar! hlýtt á kinnum fríðum.

Vorboðinn ljúfi! fuglinn trúr sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!
Heilsaðu einkum ef að fyrir ber
engil með húfu og rauðan skúf, í peysu;
þröstur minn góður! það er stúlkan mín.